Fimmtudagur  9. September, 2010
  .Forsíða   .Fréttir   .Starfsfólk   .Verk   .Viðurkenningar   .Um okkur   .Tenglar   .AUGLÝSINGAR   

 2010
Ágúst (3)  
Júní (1)  
Janúar (4)  
 2009
 2008
 2007
 2006
 2005
 2004
 2003
 2002

Kynningarfundur á Aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022
26 Janúar 2010


Kynning á aðalskipulagsbreytingum og fyrirspurnum svarað. Boðið er upp á að ræða einstaka þætti skipulagstillögunnar. Þau málefni sem rædd verða eru breytingar sem verið er að gera frá gildandi aðalskipulagi, þ.e. stórskipahöfn og Suðurlandsvegur (grunnkerfi), þéttbýli við Hvammshring og Árbæ og breytingar innan Þorlákshafnar (samfélag og byggð), ný verndarsvæði, þ.e. hverfisvernd nýrra svæða og stækkun annarra (náttúra og verndarsvæði) og atvinnumál.

Aðalskipulagsgögnin eru í vinnslu og sett fram til kynningar. Þeim sem vilja koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum er bent á aðhafa samband við skipulagsfulltrúa Ölfuss, sigurdur@olfus.is, eða Landmótun, gisli@steinsholtsf.is.

Greinargerð Ölfus: Greinarg-Olfus

Greinargerð Þorlákshöfn: Greinarg-Þorl

Uppdráttur Ölfus: Uppdr-Olfus

Þéttbýlisuppdráttur Þorlákshöfn: Uppdr-Þorlakshofn

Þéttbýlisuppdráttur Árbær og Hvammsvegur: Uppdr-ArbHvamsv

Forsendur: Forsendur

Umhverfisskýrsla:  Umhv-skyrsla

Skýringaruppdrættir

Eignarhald lands www.landmotun.is/assets/Temakort_Landamerki_Olfus.pdf

Námuvinnsla www.landmotun.is/assets/Temakort_Namavinnsla_Olfus.pdf

Frístundabyggð www.landmotun.is/assets/Temakort_Fristundabyggd_Olfus.pdf

Landbúnaður www.landmotun.is/assets/Temakort_Landbunadur_Olfus.pdf

Náttúruvernd www.landmotun.is/assets/Temakort_Verndarsvaedi_Olfus.pdf

Vatnsvernd www.landmotun.is/assets/Temakort_Vatnsvernd_Olfus.pdf

Samgöngur www.landmotun.is/assets/Temakort_Samgongur_Olfus.pdf

Veitur www.landmotun.is/assets/Temakort_Veitur_Olfus.pdf


 

 
HR flytur í Nauthólsvík
14 Janúar 2010


Háskólinn í Reykjavík (HR) flutti starfsemi sína í nýja byggingu í Nauthólsvík 11.janúar síðastliðinn.

Þrjár af fimm deildum HR er nú fluttar í nýbygginguna. Hinar fylgja svo í kjölfarið í sumar og verður þá starfsemin öll undir einu þaki.

Landmótun sá um landslagshönnun í hönnunarteymi skólans.


 

 
Útibú verður sjálfstæð eining
14 Janúar 2010


Útibú Landmótunar að Laugalandi verður frá áramótum rekið sem sjálfstæð eining undir merkjum Steinsholts sf.
Viðskiptavinir ættu ekki að merkja breytinguna að öðru leyti en því að netföng starfsmanna breytast sem hér segir:

Gísli Gíslason, landslagsarkitekt FÍLA - gisli@steinsholtsf.is
Ásgeir Jónsson, landfræðingur - asgeir@steinsholtsf.is
Ingibjörg Sveinsdóttir, landfræðingur - ingibjorg@steinsholtsf.is

 


 

 
Gleðilegt nýtt ár
8 Janúar 2010


Landmótun óskar viðskiptavinum og samstarfsaðilum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir liðin ár.
 

 

  Landmótun - Hamraborg 12 - 200 Kópavogur - sími: 575 5300 - fax: 554 5360 - alm.netfang: landmotun@landmotun.is