Tillaga að breytingum á Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss, 2002-2014, vegna Bitruvirkjunar, Hellisheiðavirkjunar, iðnaðarsvæða við Þorlákshöfn og Gráuhnúka, niðurfellingu flugvallar, breytingar á vatnsverndarmörkum og akstursíþróttasvæðis.
Bæjarstjórn Ölfuss heimilar auglýsingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014 vegna Bitruvirkjunar, Hellisheiðavirkjunar, iðnaðarsvæða við Þorlákshöfn og Gráuhnúka, niðurfellingu flugvallar, breytingar á vatnsverndarmörkum og akstursíþróttasvæðis, samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br. Auglýsingin er skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdráttur og umhverfisskýrsla ásamt athugasemdum sem Skipulagsstofnun lagði fram með bréfum 30. mars 2009, 25. maí 2009 og 31. júlí 2009.
Skipulagsuppdráttur
Skipulagsgreinargerð
Umhverfisskýrsla
Athugasemdir Skipulagsstofnunar: Bréf1 - Bréf2 - Bréf3
Viðbrögð við athugasemdum Skipulagsstofnunar: Viðbrögð
Markmið sveitarstjórnar Ölfuss með breytingunni er margþætt. Verið er að auka við framboð á stærri sem og smærri iðnaðarlóðum vestan Þorlákshafnar þar sem stutt er í orku á Hellisheiði, góð hafnarskilyrði og með tilkomu Suðurstrandarvegar í náinni framtíð, hefur aukið ásókn í lóðir fyrir orkufrekan iðnað. Til að koma orku til þessara iðnaðarsvæða, þarf að auka við flutning raforku og er því gert ráð fyrir tveimur 220 kV raflínum frá annarsvegar tengivirki við Kolviðarhól og hinsvegar fyrirhuguðu tengivirki á Hellisheiði.
Þann 19. mars 2008 var auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014, sem náði m.a. til virkjanasvæða við Hverahlíð og Bitru. Fjöldi athugasemda barst við auglýsta tillögu og nær allar vegna fyrirhugaðs virkjanasvæðis við Bitru. Vegna aðstæðna sem þá voru, ákvað Sveitarfélagið Ölfus að fresta aðalskipulagi á því landsvæði sem tekur til Bitruvirkjunar og var svæðið auðkennt sérstaklega á skipulagsuppdrætti.
Sveitarfélagið Ölfuss telur að vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu sé þörfin fyrir nýja atvinnusköpun brýnni en nokkru sinni fyrr. Með sjálfbærri orkunýtingu í sveitarfélaginu skapast forsendur til fjölbreyttrar uppbyggingar á atvinnustarfsemi fyrir allt Suðurland. Með skýrri marksmiðssetningu, þar sem tekið er tillit til umhverfisins og ströngum kröfum um umhverfisfrágang, telur sveitarfélagið að uppbygging á orkuvinnslu við Bitru og Gráuhnúka vinni saman með þeirri starfsemi sem fyrir er á svæðinu, þ.e. útivist og ferðaþjónustu sem og einnig að afla betri upplýsinga um þá auðlind sem jarðhitinn er, til að auka vitneskju um sjálfbærra nýtingu hennar. Við endurskoðun á aðalskipulagi Ölfuss hafa markmiðum iðnaðarsvæða verið breytt. Lögð er áhersla á umhverfisvæna orkuöflun og að við virkjun og mannvirkjagerð alla verði horft til meiri samþættingu orkuvinnslu og náttúruverndar á Hengilssvæðinu og þá einnig horft til friðunar ákveðinna svæða. Með fyrrgreindum atriðum telur sveitarfélagið að rökstudd afstaða sé tekin til álits Skipulagsstofnunar frá 19. maí 2008 og tillit sé tekið til þeirra athugasemda sem bárust sem flestar við Bitruvirkjun.
Helstu atriðin í aðalskipulagsbreytingunni eru:
Iðnaðarsvæði, markmið og leiðir. Stækkun iðnaðarsvæðis Hellisheiðavirkjunar, iðnaðarsvæði fyrir Bitruvirkjun, nýtt rannsóknar- og vinnslusvæði við Gráuhnúka, ný iðnarðsvæði vestan Þorlákshafnar.
Vatnsvernd og náttúruvá.
Opin svæði til sérstakra nota.
Samgöngur og veitur, s.s. Þorlákshafnarlín 2 og 3.
Efnistökusvæði.
Sveitarfélagið Ölfuss tekur fram að þeir sem gerðu athugasemdir við auglýsta tillögu að aðalskipulagsbreytingu árið 2008, þegar Bitra var auglýst, þurfa að ítreka þær við þessa auglýsingu telji þeir að athugasemdirnar eigi einnig við nú.
Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Ölfuss að Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn á skrifstofutíma og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, frá og með 22. ágúst 2009 til 19. september 2009. Skipulagsgögn má sjá á heimasíðu www.olfus.is og www.landmotun.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við aðalskipulagið. Frestur til þess að skila þeim inn er til 3. október 2009.
Skila skal athugasemdum inn á bæjarskrifstofur Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.