Landmótun

Um okkur

STOFAN

Landmótun er teiknistofa landslagsarkitekta og skipulagsfræðinga sem hefur veitt alhliða ráðgjöf um skipulag og hönnun síðan 1994. Starfsfólk hefur langa reynslu á vinnu í teymum og leggur sérstakan metnað í góð samskipti við aðra sérfræðinga, hagsmunaaðila og verkkaupa. Stofan leggur auk þess áherslu á fagleg vinnubrögð og umhverfisstefnu í anda sjálfbærrar þróunar.

Starfsfólk Landmótunar hefur víðtæka reynslu í verkefnastjórnun, gerð útboðsgagna, áætlanagerð, gerð kostnaðaráætlana, eftirlit með framkvæmdum og gerð upplýsinga korta. Sem dæmi um verkefni má nefna:

  • opin svæði
  • torg og stræti
  • stofnanalóðir
  • fyrirtækja lóðir
  • skólalóðir
  • ferðamannastaði útivistasvæði
  • snjóflóðavarnir
  • almenningsgarða
  • kirkjugarða
  • íbúðarhúsnæðislóðir
  • svæðisskipulag
  • aðalskipulag
  • deiliskipulag
  • verndarsvæði í byggð
  • húsakannanir
  • mat á umhverfisáhrifum.

     

 

UMHVERFIS- OG SAMGÖNGUSTEFNA

Stefna Landmótunar sf er að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum og stefnir að því að verða vistvænn vinnustaður. Landmótun vill taka þátt í því að móta öruggt umhverfi í átt að sjálfbærni sem stuðlar að lífsgæðum sem tekur mið af aðstæðum á hverjum stað, í öllum verkefnum stofunnar.

Til þess að ná því markmiði hefur fyrirtækið mótað sér umhverfisstefnu. Í henni er lögð áhersla á að sjónarmið umhverfisverndar verði höfð að leiðarljósi í rekstri, stjórnun og verkefnum fyrirtækisins. Mikilvægt er að allir starfsmenn séu virkir við framkvæmd umhverfisstefnunnar.

Umhverfisstefnan og framkvæmd hennar er liður í daglegu starfi fyrirtækisins til að draga úr álagi á náttúru, auka gæði og vekja áhuga á innra og ytra umhverfisstarfi. Stefnan tekur til allrar starfsemi fyrirtækisins þ.m.t. verkefnum, vinnuumhverfi, notkun auðlinda, og úrgangs og á einnig við ræstingar og innkaup.

Tilgangur samgöngustefnu er að hvetja starfsfólk til að nýta sér vistvænan ferðamáta og hvetja til aukinnar umhverfisvitundar í allri vinnu stofunnar.
Með vistvænum ferðaháttum er átt við almenningssamgöngur, reiðhjól, samnýtingu ökutækja og að ganga.  Með vistvænum samgöngum má draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið s.s. mengun og auknu álagi á gatnakerfið, um leið og stuðlað er að aukinni hreyfingu og bættri heilsu. 

Við hjá Landmótun
• Störfum eftir vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi og vinnum að stöðugum umbótum.
• Förum að kröfum sem eiga við um starfsemi fyrirtækisins.
• Við leggjum áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif stofunnar.
• Við leitumst við að greina þarfir viðskiptavina okkar, notenda og annarra hagsmunaaðila og leitum leiða til að uppfylla þær.
• Við leggjum áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif í verkum stofunnar.
• Við leggjum áherslu á algilda hönnun sem tryggir aðgengi fyrir alla.
• Við leitumst við að tengja borgarlíf við gæði náttúrunnar við hönnun í þéttbýli.
• Að við hönnun og útfærslu sé efniviður á staðnum nýttur og umhverfið aðlagað að staðháttum.
• Landmótun leitast við að nota blágrænar lausnir í úrlausnum verkefna.
• Lögð er áhersla á að viðhalda þekkingu starfsmanna með endurmenntun, þjálfun og vitund í umhverfismálum.
• Við leggjum rækt við góðan starfsanda og lýðheilsu starfsmanna.
• Áhersla er lögð á að vinnustaður sé fjölskylduvænn.
• Vinnum að því að draga úr neikvæðum áhrifum samgangna á umhverfið og stuðlum að bættu umhverfi og heilbrigðari lífsháttum. 

 

 

SAGA STOFUNAR

Landmótun var stofnuð í 15. september 1994 af Einari E. Sæmundsen, Gísla Gíslasyni og Yngva Þór Loftssyni landslagsarkitektum. Þær Ingibjörg Kristjánsdóttir og Áslaug Traustadóttir gerðust síðan meðeigendur 1999, Aðalheiður E. Kristjánsdóttir 2004, Óskar Örn Gunnarsson 2012 , Margrét Ólafsdóttir og Þórhildur Þórhallsdóttir 2017 og Jóhann Sindri Pétursson 2025.

Eigendur Landmótunar eru í dag Aðalheiður E. Kristjánsdóttir, Jóhann Sindri Pétursson, Margrét Ólafsdóttir , Óskar Örn Gunnarsson og Þórhildur Þórhallsdóttir.