Steinbryggjan – Bæjartorg – Tryggvagata

Steinbryggjan – Bæjartorg – Tryggvagata

  • Heiti verks: Steinbryggjan í Reykjavík
  • Hönnuðir: Áslaug Traustadóttir, Þórhildur Þórhallsdóttir
  • Verkkaupi: Reykjavíkurborg
  • Framkvæmdaraðili: Aðalverktaki – Lóðaþjónustan,
    • Stálsmíði – Vélsmiðjan Hamar,
    • Timburvinna – SS Brunnar,
    • Steinsmíði – Steinkompaníið
  • Hannað: 2017-2019
  • Framkvæmt: 2018-2019
  • Sveitarfélag: Reykjavík
  • Samstarfsaðilar: Mannvit

Steinbryggjan var byggð árið 1884 og er fyrsta bryggjan í eigu Reykvíkinga og því merk í sögu borgarinnar. Fyrir þann tíma einkenndu trébryggjur strandlengjuna og voru þær allar í eigu kaupmanna. Steinbryggjan var fyrsti viðkomustaður margra gesta borgarinnar, svo sem þeirra Friðriks VIII sem steig á land árið 1907 og Kristjáns X sem kom til Reykjavíkur árið 1921. Árið 1940 var fyllt yfir bryggjuna og hvarf hún þar með sjónum þar til núna.

Torgið Steinbryggjan rammar inn sýnlegan hluta gömlu steinbryggjunar, við hönnun umhverfisins við bryggjuna var horft á  tengingu við sjó og bryggjulíf, torgstemningu og notagildi. Lögð var áhersla á gott gönguflæði allt í kringum bryggjuna og tengingar við aðliggjandi götur og torg. Staðurinn er einnig sérlega sólríkur og skjólgóður í góðum tengslum við bæjarlífið í kvosinni og á höfninni.

Nýja torgið Steinbryggjan tengir saman fortíð og nútíð, miðborg og höfn, eldri götur og nýjar. Steinbryggjan er í eigu Reykjavíkurborgar og býður íbúa og gesti velkomna án allra kvaða líkt og Bæjarbryggjan gerði á sínum tíma. Hönnun hins nýja torgs var í höndum Landmótunar og lýsing í höndum Mannvits. Unnið var með efni sem tengjast hafinu en setþrep og tröppur eru til að mynda úr bryggjutimbri og grágrýti notað í kanta og þrep. Sögu bryggjunnar verða gerð skil á handriði sem liggur meðfram tollhúsinu og verður sú vinna í höndum Borgarsögusafns Reykjavíkur.

Þann 5. september 2019 afhjúpaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ljóðlínur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur á nýju torgi við gömlu steinbryggjuna í miðbæ Reykjavíkur en torgið var hannað af Landmótun. Torgið er á horni Tryggvagötu og Pósthússtrætis og fær nafn sitt frá bryggjunni sjálfri og heitir einfaldlega Steinbryggja. Ljóðlínurnar á torginu eru úr ljóðinu „Vetur“ sem fyrst birtist í bók Vilborgar Dvergliljur árið 1968. Vilborg var viðstödd  og við þetta ánægjulega tilefni ræddu skáldin Gerður Kristný og Sunna Dís Másdóttir um skáldskap Vilborgar og fluttu ljóð eftir hana. Reykjavík bókmenntaborg UNESCO stendur fyrir ljóðlínunum í samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar og er Vilborg fyrsta skáldið sem heiðrað er með þessum hætti.  Á Steinbryggju geta vegfarendur nú sest á skáldabekk, skannað rafrænan kóða með snjallsíma og hlustað á Vilborgu sjálfa fara með ljóðið „Vetur“ og nokkur önnur ljóð auk þess sem hægt er að hlusta á sömu ljóð lesin á ensku.