1. Verðlaun – Langisandur

1. Verðlaun – Langisandur

Landmótun & Sei Studio hafa unnið 1. verðlaun í samkeppni Akraneskaupstaðar um Langasand.

Markmiðið með samkepninni var að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnarsvæðið.

Tillagan byggir á að styrkja og auka við núverandi notkun á Langasandi og gera svæðið öruggara, skemmtilegra og aðgengilegra fyrir alla.
Meginhugmyndin byggir á 4 megin þáttum.

  • Gönguflæði / aðgengi
  • Sjór / strönd
  • Kennileiti / sýnileiki
  • Opin svæði / afþreying