Gleðileg jól

Gleðileg jól

Starfsfólk Landmótunar óskar landsmönnum öllum gleðilegra hátíða og farsæls komandi árs. Við þökkum samstarfsfólki okkar fyrir ánægjulegt og frjótt samstarf á liðnum árum.

Landmótun er fjölskylduvænn vinnustaður og gefur starfsfólki sínu frí milli jóla og nýárs. Teiknistofan lokar því á Þorláksmessu þann 23. desember og opnar aftur fimmtudaginn 2. janúar.