Tags
Author Archives: aslaug

Vatnsmýri við Norrænahús
Í mars 2012 efndu Norræna húsið í samvinnu við Félag Íslenskra Landslagsarkitekta og Hönnunarmiðstöðvar Íslands til hugmyndasamkeppni um hönnun á svæði sem umlykur Norræna húsið. Hlaut hugmynd Landmótunar 1. verðlaun. Hugmyndin er nefnd “Náttúra og norðurljós” og byggist á flæði … Continue reading →

Náttúra og norðurljós fékk 1. verðlaun
Hugmynd Landmótunnar af umhverfi Norræna hússins og Öskju í Vatnsmýri hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar, Norræna hússins og Háskóla Íslands. Hugmyndina er nefnd “Náttúru og norðurljós” og byggist á flæði ljóss og skugga, mannlífs og árstíða, fugla og vatns. … Continue reading →

HönnunarMars 2012
HönnunarMars fer fram í fjórða skiptið, dagana 22. – 25. mars 2012. HönnunarMars er fjögurra daga hönnunarhátíð í Reykjavík þar sem dagskráin er barmafull af fjölbreyttum og spennandi viðburðum af ýmsu tagi. Í Norræna húsinu er málþingið “Landslag og Mannvirki” sem … Continue reading →
Öskudagur
Öskudagurinn var skemmtilegur, furðuverur komu og sungu af hjartans lyst og fengu nammipoka í verðlaun. Gamlir slagarar, eigin útsetningar og frumstamdir textar í bland. Takk fyrir okkur Skoða má nokkrar myndir á fésbókarsíðu Landmótunnar: Öskudagur 2012
Í auglýsingu – Ölfuss
Bæjarstjórn Ölfuss hefur ákveðið að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022. Í aðalskipulaginu er mörkuð skýr stefna fyrir þéttbýli og dreifbýli. Landbúnaðarsvæði eru skilgreind sem og vegir, reiðleiðir, hjólaleiðir, hafnir og sjóvarnir. Sett er inn nýtt hverfisverndarsvæði sem … Continue reading →
Evrópski landslagssamningurinn
Einar E. Sæmundsen, landslagsarkitekt er í undirbúningshóp fyrir „námsstefnu“ sem haldin verður á Íslandi um Evrópski landslagssamningurinn ELC 7-9.júní 2012 Nú er hafinn lokaundirbúningur fyrir „námsstefnu“ um Evrópska landslagssamninginn ELC. Undirbúningurinn hefur staðið allt síðasta ár og liggur fyrir að … Continue reading →

Lækurinn á sýningu um allan heim
Íslensk samtímahönnun – Icelandic Contemporary Design Sýningin Íslensk samtímahönnun – húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr opnaði fyrst á Listahátíð í Reykjavík á Kjarvalsstöðum í maí 2009. Síðan hefur sýningin verið sett upp í Ketilhúsinu á Akureyri, í Dansk Design Center í … Continue reading →
Ný heimasíða
Ný heimasíða Landmótunar er komin í loftið. Unnið hefur verið að uppfærslu á heimasíðunni í nokkurn tíma og smám saman mun aukast efni á nýju síðunni.

Orlofshúsasvæði VR í Miðhúsaskógi, Bláskógabyggð
Fyrir réttu ári vann Landmótun að breytingu á deiliskipulagi orlofshúsasvæðis VR í Miðhúsaskógi. Breytingin fólst í því að gera ráð fyrir tjald- og hjólhýsasvæði fyrir félagsmenn með það í huga að auka við fjölbreytileika í gistiaðstöðu á þessu vinsæla orlofshúsasvæði. … Continue reading →
Flokkar Deiliskipulag, Fyrirtæki, Hönnun, Skipulag, Útivistarsvæði